Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   mán 02. september 2019 22:05
Brynja Dögg Sigurpálsdóttir
Sara Björk: Vorum ekki nógu heitar inn í teignum
Icelandair
Sara Björk fyrirliði í leik kvöldsins.
Sara Björk fyrirliði í leik kvöldsins.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Markmiðinu náð, 6 stig og tveir sigrar er bara frábært. Frábært hugarfar og attitude í dag, þannig að maður er sáttur eftir þessa ferð. Frábær ferð“, sagði Sara Björk fyrirliði íslenska landsliðsins eftir 1-0 sigur gegn þéttu liði Slóvaka á Laugardalsvelli í kvöld.

Lestu um leikinn: Ísland 1 -  0 Slóvakía

„ Mér fannst erfitt að brjóta Slóvakíu í leiknum, þær lágu mjög lágt niður á vellinum en svæðin voru meira á köntunum. Við byrjuðum með mikið af fyrirgjöfum en vorum kannski ekki alveg nógu heitar inn í teignum. Það er alltaf erfitt að spila á móti liði sem liggur svona djúpt en mér fannst við gera vel, við vorum þolinmóðar og biðum eftir tækifærinu. Síðan nýtir Elín það mjög vel.“

Slóvanska liðið lokaði miðjunni vel og átti Ísland í miklum vandræðum með að skapa sér almennileg færi framan af í leiknum.

„Við vissum að þær voru fastar fyrir og væla mikið, það reyndi á þolinmæðina hjá okkur en við gerðum það vel.“

Ísland byrjar þessa undankeppni frábærlega með 6 stig eftir fyrstu tvo leikina.

„Ég og við erum með gott sjálfstraust eftir þessa ferð, 6 stig og fullt hús.“

Áhorfendatölur í þessum tveim leikjum hafa ekki verið nægilega góðar, en aðeins 2326 mættu á völlinn í kvöld.

„Ég er bara þakklát fyrir fólk sem kemur og styður okkur, það skiptir máli, “ sagði Sara Björk að lokum.

Viðtalið í heild má sjá í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner