Það ríkir gríðarleg spenna á Spáni og er ómögulegt að segja hvaða lið verður meistari á þessum tímapunkti.
Það er leikur í kvöld í La Liga sem gæti mögulega haft mikið að segja til um hvaða lið verður meistari.
Það er nefnilega þannig að Sevilla er ekki búið að útiloka sig í titilbaráttunni. Sevilla fær Athletic Bilbao í heimsókn klukkan 19:00 í kvöld.
Fyrir leikinn í kvöld er Sevilla aðeins sex stigum frá toppnum. Liðið getur minnkað muninn í þrjú stig með fjóra leiki eftir. Það eru möguleikar í þessu. Bilbao er í tíunda sæti.
mánudagur 3. maí
Spánn: La Liga
19:00 Sevilla - Athletic (Stöð 2 Sport 4)
Athugasemdir