Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   fös 05. apríl 2019 14:30
Arnar Daði Arnarsson
Jón Þór: Þurfum að spila þéttan varnarleik
Icelandair
Jón Þór Hauksson.
Jón Þór Hauksson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska kvennalandsliðið mætir Suður-Kóreu í æfingaleik í Suður-Kóreu í nótt klukkan 05:00 á íslenskum tíma.

Jón Þór Hauksson þjálfari landsliðsins er spenntur fyrir leiknum í nótt en hann var í viðtali á heimasíðu KSÍ.

„Fyrstu dagarnir hafa verið mjög góðir, það er gaman að koma hingað og það er ekki á hverjum degi sem manni gefst tækifæri til að heimsækja Suður-Kóreu. Það hefur verið virkilega vel hugsað um okkur og við höfum verið að æfa við fínar aðstæður og það hefur allt gengið vel. Við erum spennt fyrir leiknum á morgun," sagði Jón Þór sem segir að stelpurnar séu klárar í slaginn.

„Það tók fyrstu dagana að snúa sólarhringnum við og aðlaga okkur að tímamismuninum en það er allt saman klárt."

„Við leggjum leikinn upp þannig að við reynum að koma okkur hærra upp á völlinn og reynum að verjast hærra upp á vellinum. Það er alveg ljóst að við þurfum að spila þéttan varnarleik en við leggjum hann ekkert endilega þannig upp að við verðum nálægt markinu okkar. Þéttleikinn verður til staðar. Suður-Kórea spilar skipulagðan sóknarleik og sækir á mörgum mönnum. Það mun reyna á okkar þéttleika varnarlega séð, þetta verður krefjandi verkefni," sagði landsliðsþjálfarinn í viðtali við Óskar Guðbrandsson fjölmiðlafulltrúa KSÍ.

Viðtalið við Jón Þór má sjá í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner