Luis Díaz hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann biðlar til Skæruliðasamtakanna ELN í Kólumbíu að sleppa föður hans, Luis Manuel Díaz úr haldi.
Foreldrum leikmannsins var rænt fyrir rúmri viku síðan en móður hans var síðan sleppt.
Samtökin sendu frá sér yfirlýsingu fyrir helgi þar sem fram kom að áætlunin væri að sleppa Díaz eldri á næstu klukkutímum en ekkert varð úr því.
„Þetta er ekki leikmaðurinn að tala. Í dag talar Lucho Díaz, sonur Luis Manuel Díaz. Faðir minn er duglegur, stoð og stytta fjölskyldunnar. Honum var rænt. Ég bið ELN að sleppa föður mínum eins fljótt og auðið er. Ég bið einnig yfirvöld að tryggja frelsi hans," segir Díaz í yfirlýsingunni.
„Við erum áhyggjufull á hverri sekúndu. Við höfum engin orð til að lýsa hræðilegum tilfinningum fjölskyldunnar og svona verður þetta þar til hann kemur heim. Ég bið ykkur að sleppa honum núna, virðið heiðarleika hans."
„Ég vil þakka öllum í Kólumbíu og út um allan heim fyrir stuðninginn," segir Díaz að lokum.
Este gol es por la libertad de mi padre y de todos los secuestrados de mi país.
— Luis Fernando Díaz (@LuisFDiaz19) November 5, 2023
Gracias a todos por su apoyo.????????@europapress @bbcmundo @el_pais @AFP @cruzrojacol @ONU_derechos @ONUcolombia @RevistaSemana @nytimes @Reuters @CNNEE @ElTIEMPO @elheraldoco pic.twitter.com/KuRqYkTPhv



