Claudio Bravo fékk að líta rauða spjaldið í leik Manchester City gegn Atalanta á Ítalíu í kvöld.
Bravo kom inn á fyrir Ederson í hálfleik en ekki er vitað með ástæðu skiptingarinnar á þessum tímapunkti.
Bravo braut þegar langt var liðið á seinni hálfleiknum á leikmanni Atalanta fyrir utan teig og fékk að líta rauða spjaldið.

Riyad Mahrez var skipt af velli fyrir Kyle Walker sem fór í markmannshanskana og stendur í markinu hjá City síðustu mínúturnar.
Staðan er 1-1 í leiknum og Walker varði aukaspyrnuna sem dæmd var á Bravo.
Athugasemdir