Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mán 07. október 2019 13:43
Brynjar Ingi Erluson
Matip valinn leikmaður mánaðarins í september
Joel Matip var frábær með Liverpool í september
Joel Matip var frábær með Liverpool í september
Mynd: Getty Images
Joel Matip, leikmaður Liverpool á Englandi, er leikmaður september mánaðar en kosning fór fram á heimasíðu leikmannasamtakanna.

Matip spilaði alla þrjá leiki Liverpool í ensku úrvalsdeildinni í september en þar hafðist sigur gegn Newcastle, Chelsea og Sheffield United.

Hann hefur verið myndað gríðarlega öfluga vörn með Virgil van Dijk, Andrew Robertson og Trent Alexander-Arnold og situr liðið nú á toppnum með fullt hús stiga eftir átta umferðir.

Matip kom á frjálsri sölu frá Schalke sumarið 2016 en síðustu tvö tímabil hefur hann reynst Liverpool afar vel og er búinn að festa sæti sitt í liðinu.
Athugasemdir
banner
banner