Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Mér fannst frábært að spila með honum
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
   lau 07. október 2023 17:24
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ómar Ingi: Hópurinn nógu sterkur til að gera betur á næsta ári
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

HK mun spila áfram í Bestu deildinni næsta sumar þrátt fyrir tap gegn KA í dag. Ómar Ingi Guðmundsson þjálfari liðsins var svekktur með tapið en sáttur með árangurinn á tímabilinu.


Lestu um leikinn: KA 1 -  0 HK

„Auðvitað ekki sáttur með að tapa lokaleiknum en ég ætla leyfa mér að vera ánægður eitthvað framyfir helgi að við hefðum haldið okkur í deildinni. Ég var á fyrsta heila árinu í meistaraflokksþjálfun með uppeldisklúbbinn minn," sagði Ómar Ingi.

HK hóf tímabilið af krafti og var ekki í neinni fallbaráttu fyrr en undir lok móts.

„Við erum í 8. sæti eftir 22 leikja mótið, félagið hefur ekki verið það hátt áður. Félagið hefur ekki skorað jafn mörg mörk í efstu deild áður og við vinnum Blikana tvisvar. Það er fullt til að vera drullu ánægður með þótt síðustu dagar hafi verið smá þungir. Þrjár umferðir af 27 í fallbaráttu er töluvert langt frá því sem ég held ég geti sagt að allir spáðu fyrir mót," sagði Ómar Ingi.

Margir mikilvægir leikmenn liðsins eru að verða samningslausir.

„Vonandi er það á fullu. Það er ekki mitt að klára að semja við leikmenn en ég er búinn að ræða við þessa stráka og stjórnina að ég vilji fara láta ganga frá þessu. Það er fjárhagslegur munur að vera í efstu deild og næst efstu deild. Mönnum er spáð falli og soga sig í fallbaráttu í lokin þá vilja menn bara klára verkefnið áður en menn fara skuldbinda sig lengur. Ég held að það eigi jafnt við um leikmenn og félagið. Ég vona að við getum farið að ganga í þetta af krafti á næstu dögum," sagði Ómar.

„Að því gefnu að við náum að halda þeim leikmönnum sem við ætlum okkur að halda þá tel ég hópinn vera nógu sterkan til að gera það sama og jafnvel betra á næsta ári. Það eru hlutir innan hópsins sem við þurfum að vinna með. Við þurfum líka að bæta við okkur, eldri leikmenn eru orðnir þreyttir, við vorum ekki í þessari deild í fyrra. Það þarf nýja forritun í eldri skrokkana í 27 leikja mótinu til að aðlagast því."


Slapp
Athugasemdir
banner
banner