Ásgeir Sigurgeirsson, fyrirliði KA, meiddist á hné þegar KA mætti KR fyrir viku síðan. Ásgeir fór af velli snemma í þeim leik og var ekki í leikmannahópi KA þegar liðið mætti FH í gær.
Lestu um leikinn: FH 0 - 3 KA
„Ásgeir fór í aðgerð í síðustu viku þannig við reiknum með fjórum vikum og að því loknu sjáum við til," sagði Igor Bjarni Kostic, einn af þjálfurum KA, við Fótbolta.net í gær.
Ásgeir er 25 ára sóknarmaður sem uppalinn er hjá Völsungi en hefur verið í KA síðan 2016.
Í sumar hefur hann skorað eitt mark í tíu deildarleikjum. Í gær kom Hallgrímur Mar Steingrímsson inn í liðið fyrir Ásgeir og skoraði eitt af mörkum KA í 0-3 útisigri á FH.
Athugasemdir