Mo Salah til Sádi? - Alonso klár ef skilyrði verða uppfyllt - Bastoni til Barca eða Liverpool - Hafa ekki áhyggjur af Rashford
Daníel Tristan: Geggjað að fá að spila með honum
Viktor Bjarki: Mér fannst frábært að spila með honum
Lúðvík: Gaman að horfa á þá
Eykur sigurlöngun Hákonar að mæta góðum félaga - „Náðum vel saman“
„Tel mig vera þessi leiðtogi sem fólkið þarf“
Kristall Máni: Fer mér bara vel að vera óþolandi
Kristian mætir funheitur í kanadíska kuldann - „Það besta sem maður gerir“
Aron Einar fann fyrir áhyggjum og hræðslu sinna nánustu - „Óþægilegt að vera í landi þar sem eru sprengingar“
Lúðvík ánægður að fá traustið: Riðillinn er galopinn
Gísli Gotti: Átti gott samtal við Arnar
Daníel Tristan hreinskilinn: Hún hefur alveg verið betri
Viktor Bjarki: Geggjað að sjá nafnið en pæli ekki mikið í þessu
Júlíus Mar: Hausinn vildi fara út
„Menn þurfa að vera á tánum til að spila í Víkingstreyjunni“
„Enginn sem óskar sér þess að mæta Víkingi“
Gæðastjórinn ætlar að reikna út xF
Birkir Már: Hefði sagt takk en nei takk væri hann ekki þarna
Víkingar unnu FH og Stjörnuna í dag - „Gera mér virkilega erfitt fyrir að velja í liðið“
Jökull: Yrði mjög sérstakt ef við myndum breyta einhverju þar
Heimir: Vel mannaðir, með frábæran þjálfara og ætla sér stóra hluti
   þri 10. október 2023 21:49
Elíza Gígja Ómarsdóttir
Pétur Péturs: Stundum gengur það upp og stundum ekki
Kvenaboltinn
Pétur Pétursson, þjálfari Vals
Pétur Pétursson, þjálfari Vals
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur þurfti að sætta sig við svekkjandi 4-0 tap gegn SKN St. Pölten í fyrri leik liðanna í umspilinu um sæti í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Það er ljóst að það er ansi langsótt að markmið Vals um að komast í riðlakeppnina verði að veruleika í þetta skiptið. 


Lestu um leikinn: Valur 0 -  4 SKN St. Pölten

Það er hægt að segja helling“ sagði Pétur Pétursson, þjálfari Vals, eftir tapið í kvöld.

Mér fannst við spila þetta vel í fyrri hálfleik, við lokuðum vel á þær. Ódýrt mark sem við fáum á okkur svo fáum við annað markið á okkur sem mér fannst ódýrt líka, bara langskot sem þær skora úr. Þá fannst mér svona dofna yfir öllu hjá okkur“ hélt hann svo áfram. 

Í stöðunni 2-0 var eins og Valskonur hefðu hreinlega gefist upp og þær fá á sig önnur tvö mörk á tíu mínútna kafla. Þá var holan orðin ansi djúp og það verður erfitt að skríða upp úr henni.

Eftir síðasta leik hjá Val töluðu þau um að sá leikur hefði verið hálfgerð æfing fyrir það sem þau vildu gera í þessum leik. Aðspurður hvar þau ætluðu sér að særa andstæðingana í dag sagði hann:

Ég ætla að taka það fram að þetta er gott lið, þetta er klínískt lið og þær nýttu sín færi. Ég held þær hafi átt kannski fjögur skot á markið og þær skora fjögur mörk. Við náttúrulega vorum að reyna ákveðna hluti og stundum gengur það upp og stundum ekki.

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan. 


Slapp
Athugasemdir
banner
banner