Stjörnumenn unnu góðan 3-0 sigur á Nömme Kalju frá Eistlandi í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar á Samsung vellinum í dag. Baldur Sigurðsson, fyrirliði Stjörnunnar, skoraði annað mark Stjörnunnar en blaðamenn á leiknum höfðu sínar efasemdir.
„Þetta fór í mig, klárt mitt mark." sagði Baldur aðspurður um atvikið.
„Þetta fór í mig, klárt mitt mark." sagði Baldur aðspurður um atvikið.
Eins og áður segir unnu Stjörnumenn leikinn sannfærandi 3-0 og eru því komnir í góða stöðu í einvíginu.
„Við vissum ekki alveg nákvæmlega hversu sterkir þeir voru fyrir leik. Þetta er skrítin deild hjá þeim og þeir eru að vinna leikina mjög stórt. Þannig ég er bara virkilega ánægður að klára þetta og bíð spenntur eftir að fara út og reyna að klára þetta."
Nömme Kalju er í efsta sæti eistnesku úrvalsdeildarinnar og hafa skorað 68 mörk í 18 leikjum. Baldri lýst vel á að heimsækja þá í seinni leik liðanna.
„Mér lýst mjög vel á þetta. Við erum búnir að koma okkur í góða stöðu og verðum að setja á okkur þær kröfur að klára þetta einvígi." sagði Baldur að lokum.
Athugasemdir