Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 12. ágúst 2022 15:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Sveinn með yfirlýsingu: Alrangt að ég hafi verið að strá salti í sár
Sveinn Arnarsson.
Sveinn Arnarsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Arnar Grétarsson, þjálfari KA.
Arnar Grétarsson, þjálfari KA.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sveinn Arnarsson, sem var fjórði dómari í leik KA og KR, á dögunum hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna máls sem hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga.

Mönnum var mjög heitt í hamsi í þessum tiltekna leik og fékk Arnar Grétarsson, þjálfari KA, að líta rauða spjaldið undir lokin þegar KA fékk ekki vítaspyrnu. Hann var ósáttur við það.

Arnar var í vikunni dæmdur í fimm leikja bann af aganefnd KSÍ. Hann fékk sjálfkrafa tveggja leikja bann fyrir sitt annað rauða spjald í 0-1 tapi gegn KR. Refsingin var þyngd um þrjá aukaleiki vegna hegðunar hans.

Arnar var bálreiður og hrópaði 'fokking fáviti' í tvígang að Sveini, sem var fjórði dómari, eftir rauða spjaldið. Morguninn eftir leikinn hitti Arnar svo Svein, sem er búsettur á Akureyri, í KA-heimilinu. Arnari var ekki runnin reiðin. Í viðtali í Þungavigtinni í dag setur Arnar spurningamerki við þá ákvörðun Sveins að mæta í KA-heimilið daginn eftir leik.

Sveinn hefur núna sent frá sér yfirlýsingu sem hægt er að lesa í heild sinni hér fyrir neðan.

Yfirlýsing Sveins
Að gefnu tilefni,

Ég í sannleika sagt hélt að ég þyrfti ekki að skrifa þennan texta en vegna þeirra ummæla sem hafa fallið sé ég mig knúinn til að útskýra ákveðna hluti.

Morgun eftir leik í 15. umferð bestu deildar karla fékk ég skilaboð frá framkvæmdastjóra KA þar sem hann biður mig afsökunar á því sem gerðist á síðustu andartökum leiksins og eftir leik. Ég tók þeirri afsökunarbeiðni og spurði hvort ég gæti hitt á hann. Hann sagði við mig að líta endilega við.

Ég á barn, tíu ára dreng, sem æfir knattspyrnu með KA. Í hádeginu, 3. ágúst, daginn eftir umræddan knattspyrnuleik, fer ég með barn mitt á knattspyrnuæfingu. Aðstoðaði ég hann í anddyri félagsheimilis liðsins við að klæða sig í knattspyrnuskó og hnýta skóþveng sinn þar sem virkilega kalt var í veðri og barnið loppið á fingrum.

Ég náði mér því næst í kaffibolla og þar næst gáði ég hvort framkvæmdastjórinn væri við. Á þeim tíma kom þjálfari KA að mér. Þau orð sem þar voru látin falla í minn garð voru alls ekki neitt kurteisishjal. Hegðun sem þessi, bæði á knattspyrnuvelli og sér í lagi daginn eftir leik, er ekki íslenskri knattspyrnu til framdráttar.

Það er því alrangt að ég hafi á nokkurn hátt verið að strá salti í sár nokkurs manns. Ég einfaldlega tók við afsökunarbeiðni og mælti mér mót við frkv.stjóra áður en ég ætlaði að horfa á barn mitt æfa knattspyrnu. Menn verða að taka ábyrgð á eigin hegðun með öðrum hætti en að gera það eitthvað tortryggilegt að ég sé í KA-heimilinu daginn eftir leik, þegar ég kom þangað annars vegar með son minn á æfingu og hins vegar til að hitta á frkv. stjóra félagsins, sem getur staðfest það.

Við erum komin á mjög skringilegar slóðir ef umræða um íslenska knattspyrnu hverfist um 38 ára fjölskylduföður á Akureyri. Íslensk knattspyrna er í sókn og fagmennskan verður æ meiri með hverju árinu. Látum hér staðar numið og beinum sjónum okkar fram veginn, íslenskri knattspyrnu til heila.

Læt ég þetta vera mín lokaorð um málið.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner