Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 14. september 2021 17:53
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeildin - Byrjunarlið: Barcelona í þriggja manna vörn
Luuk de Jong byrjar fyrir Barcelona.
Luuk de Jong byrjar fyrir Barcelona.
Mynd: Getty Images
Saul er settur á bekkinn.
Saul er settur á bekkinn.
Mynd: EPA
Það er sannkallaður stórleikur í Meistaradeildinni klukkan 19:00 þegar Barcelona tekur á móti Bayern München.

Barcelona stillir upp í þriggja manna vörn og fremstir eru Hollendingarnir Memphis Depay og Luuk de Jong.

Bayern er án Serge Gnabry og byrjar táningurinn Jamal Musiala. Á miðjunni eru Joshua Kimmich og Leon Goretzka, sem byrjuðu inn á miðsvæðinu fyrir þýska landsliðið gegn Íslandi á dögunum.

Byrjunarlið Barcelona: Ter Stegen; Sergi Roberto, Araujo, Pique, Eric Garcia, Jordi Alba; Busquets, Frenkie de Jong, Pedri; Memphis, Luuk de Jong.

Byrjunarlið Bayern: Neuer, Pavard, Upamecano, Süle, Davies, Kimmich, Goretzka, Musiala, Müller, Sané, Lewandowski.

Chelsea hefur titilvörn sína gegn Zenit frá Rússlandi á heimavelli. Chelsea byrjar með sterkt lið í leiknum en Saul tekur sér sæti á bekknum eftir að hafa spilað illa í fyrsta leik sínum fyrir félagið, gegn Aston Villa síðasta laugardag.

Byrjunarlið Chelsea: Mendy; Azpilicueta, Christensen, Rudiger; James, Jorginho, Kovacic, Alonso; Ziyech, Lukaku, Mount.

Hægt er að skoða öll byrjunarliðin fyrir leikina sex sem hefjast klukkan 19:00 með því að smella hérna.

Leikir dagsins:
E-riðill:
19:00 Dynamo Kiev - Benfica
19:00 Barcelona - Bayern (Stöð 2 Sport 3)

F-riðill:
16:45 Young Boys - Man Utd (Viaplay)
19:00 Villarreal - Atalanta (Viaplay)

G-riðill:
16:45 Sevilla - Salzburg (Stöð 2 Sport 3)
19:00 Lille - Wolfsburg (Stöð 2 Sport 4)

H-riðill
19:00 Chelsea - Zenit (Stöð 2 Sport 2)
19:00 Malmö - Juventus (Viaplay)
Athugasemdir
banner
banner
banner