Klukkan 18:45 hefst leikur Íslands og Andorra í undankeppni EM en hér má nálgast textalýsingu frá leiknum.
Athygli vekur að Kári Árnason er hvíldur í kvöld og Jón Guðni Fjóluson kemur inn í hans stað.
Athygli vekur að Kári Árnason er hvíldur í kvöld og Jón Guðni Fjóluson kemur inn í hans stað.
„Kári var meiddur aftan í læri fyrir mánuði síðan og það er stutt milli leikja núna. Ef menn togna aftan í læri, sem við höfum fengið nóg af, þá eru leikirnir í nóvember í hættu."
„Við erum með marga góða miðverði og ákváðum að gefa einum af þeim séns og hvíla Kára. Jón Guðni á skilið að fá tækifærið, hann hefur spilað mjög vel í Rússlandi," segir Freyr Alexandersson í viðtali við RÚV.
Freyr Alexandersson fer yfir það af hverju Jón Guðni Fjóluson kemur inn í vörn Íslands í kvöld í stað Kára Árnasonar. #ISLAND pic.twitter.com/CNxOOMs9je
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) October 14, 2019
Athugasemdir