Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 15. september 2018 16:28
Arnar Helgi Magnússon
Jói Kalli: Það er möguleiki að vinna deildina
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Jóhannes Karl þjálfari ÍA var að vonum sáttur eftir sigur sinna manna gegn Selfossi í dag. Með sigrinum tryggðu Skagamenn sæti sitt í Pepsi deildinni að ári.

Lestu um leikinn: Selfoss 1 -  3 ÍA

„Þetta var frekar undarlegur leikur. Mér fannst við gera mikið meira en nóg til þess að vinna leikinn en auðvitað eru Selfyssingar með hörkulið líka. Á köflum bara þetta pínu skrítið og erfitt og mikið stress í lokinn þrátt fyrir að við værum með alla yfirburði á vellinum."

„Þeir ná þessu eina marki og stríða okkur aðeins í restina. Við sigldum þessu heim af fagmennsku og kláruðum þetta. Tryggðum okkar sæti í Pepsi sem var alltaf markmiðið."

Ein umferð er eftir af deildinni og Skagamenn geta enn unnið deildina.

„Það er því miður ekki í okkar höndum en við eigum einn leik eftir og það er möguleiki að vinna deildina. Við viljum gera það og enda þetta tímabil af krafti í síðasta leik heima á móti Þrótti."

Viðtalið við Jóhannes má sjá í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner