Harvey Elliott, ungur leikmaður Liverpool, lenti í skelfilegum meiðslum gegn Leeds síðasta sunnudag.
Elliott hafði komið sterkur inn í lið Liverpool - þrátt fyrir að vera aðeins 18 ára gamall - en hann verður núna frá í nokkra mánuði sem er mjög svekkjandi fyrir hann og liðið.
Þrátt fyrir að það sé örugglega ótrúlega pirrandi að lenda í meiðslum, þá ákvað Elliott að vera hress á spítalanum. Hann gladdi ungan stuðningsmann.
Elliott gaf stuðningsmanninum, sem heitir Jacob, treyjuna sína og takkaskó.
Jacob, sem hafði sjálfur úlnliðsbrotnað, var mjög glaður með gjöfina eins og sjá má hér að neðan.
Today Jacob, who plays for our U14s Pumas, broke his wrist after a nasty fall.
— NEL Juniors (@NELJuniors) September 12, 2021
He ended up in hospital next to @HarveyElliotLFC who despite his own injury gave his shirt and boots to Jacob! Who also happens to be a @LFC fan! We wish you both a speedy recovery! #classact pic.twitter.com/6cybYKWt42
Athugasemdir