Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 17. nóvember 2018 14:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðlaugur Victor: Mikilvægt að enda árið á sigri
Icelandair
Guðlaugur Victor Pálsson.
Guðlaugur Victor Pálsson.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Miðjumaðurinn Guðlaugur Victor Pálsson ræddi við Fótbolta.net eftir æfingu íslenska landsliðsins í Spa í Belgíu í dag. Æfingavöllurinn er rétt hjá Formúlu 1 brautinni frægu.

Framundan er vináttulandsleikur gegn Katar á mánudaginn.

Ísland hefur ekki náð að vinna alvöru landsleik á árinu en vonast er til þess að það breytist á mánudag.

„Þetta er síðasti leikurinn á þessu ári og það er mikilvægt að enda árið á sigri," sagði Guðlaugur Victor en hann er í topppmálum þrátt fyrir að vera nýbúinn að stíga upp úr meiðslum.

„Ég náði að spila aðeins áður en ég kom hingað. Lærið er alveg búið að halda, ég fann ekkert fyrir þessu í síðasta leik með Zürich eða á móti Belgíu. Ég er í toppmálum."

„Við höfum gert mjög vel í síðustu leikjum, Belgarnir, besta lið í heimi, átti erfitt með okkur. Byrjunin var hræðileg en það er jákvætt að síðustu leikir hafi litið betur út. Við höfum ekki unnið lengi og það er mikilvægt að enda þetta ár á sigri. Svo einbeitum við okkur að því sem kemur í mars."

Ótrúleg meiðslavandræði Íslands í kringum þetta verkefni hafa mikið verið í umræðunni.

„Það koma bara nýir strákar inn, þetta eru allt saman fínir og skemmtilegir strákar. Það er góður húmor og svona í hópnum. Maður er ekki að velta sér of mikið upp úr þessum meiðslum og forföllum," sagði Guðlaugur Victor að lokum en viðtalið við hann er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner