Man Utd gæti fengið Donnarumma ef Inter kaupir Onana - Tottenham reynir við Eze - Vardy óvænt orðaður við Napoli
   þri 19. ágúst 2025 21:02
Haraldur Örn Haraldsson
Spánn: Mbappe með eina markið í fyrsta deildarleik Alonso
Mynd: EPA

Real Madrid spilaði í kvöld sinn fyrsta leik í spænsku úrvalsdeildinni undir stjórn Xabi Alonso þegar þeir unnu Osasuna 1-0.


Kylian Mbappe skoraði eina mark leiksins úr vítaspyrnu á 51. mínútu. Örugg spyrna niður í hægra hornið. 

Abel Bretones leikmaður Osasuna fékk svo að lýta rauða spjaldið á 94. mínútu fyrir virkilega ljóta tæklingu. 

Trent Alexander-Arnold og Dean Huijsen gengu báðir til liðs við Real Madrid í sumar, en þeir byrjuðu leikinn.

Real Madrid mætir næst nýliðinum Real Oviedo.


Athugasemdir
banner