Arsenal með í kapphlaupinu um Ekitike - Mikill áhugi á McAtee - Man Utd tilbúið að selja Malacia
   lau 19. september 2020 12:07
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Pickford gagnrýndur - Enginn fengið á sig fleiri mörk fyrir utan teig
Staðan er 1-1 þegar þetta er skrifað í leik Everton og WBA - hádegisleik ensku úrvalsdeildarinnar. Grady Diangana skoraði mark WBA á 10. mínútu með skoti fyrir utan teig. Dominic Calvert-Lewin jafnaði leikinn á 32. mínútu.

Markið er 25. úrvalsdeildarmarkið sem Jordan Pickford, markvörður Everton, hefur fengið á sig frá því tímabilið 2017/18 byrjaði.

Enginn markvörður í deildinni hefur fengið á sig fleiri mörk fyrir utan teig. Pickford fær á sig gagnrýni á Twitter fyrir að hafa ekki varið skotið frá Diangana.

„Það er oft nóg að sparka boltanum þéttingsfast svona í áttina að marki Everton þegar að Pickford stendur vaktina," skrifar Tómas Þór Þórðarson um mark WBA á Twitter.





Athugasemdir
banner