Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   lau 19. september 2020 14:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Zidane: Aldrei verið nein vandamál milli mín og Bale
Mynd: Getty Images
„Það er ekki út af mér [sem Bale er að fara]," sagði Zinedine Zidane, stjóri Real Madrid, í dag.

„Þetta er flóknara en það, þegar kemur að Bale þá er það alltaf önnur hliðin gegn hinni en ég hef aldrei átt í neinum erjum við Gareth."

„Það munu alltaf koma upp eihverjir hlutir. Núna er hann að skipta um umhverfi og það eina sem við getum gert er að óska honum alls hins besta. Hlutir gerast í fótboltanum en ég hef alltaf sagt að Bale er stórkostlegur fótboltamaður,"
sagði Zidane um Gareth Bale sem er að ganga í raðir Tottenham að láni frá Real Madrid.

Sögusagnir hafa verið í gangi um að Zidane sé í nöp við Bale og sé pirraður á hugarfari leikmannsins sem og meiðslatíðni hans. Zidane slær hér með á þær sögusagnir.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner