Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
   sun 21. febrúar 2021 07:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Segir Amad Diallo minna á Mahrez
Diallo lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Man Utd í vikunni.
Diallo lék sinn fyrsta leik fyrir aðallið Man Utd í vikunni.
Mynd: Getty Images
Vinstri bakvörðurinn Luke Shaw segir að Amad Diallo minni sig á Riyad Mahrez, kantmann Manchester United.

Diallo var keyptur til Man Utd frá Atalanta fyrir 18,7 milljónir punda en sú upphæð gæti hækkað í 36,5 milljónir punda í framtíðinni ef hann stendur sig vel. Diallo, sem er 18 ára, spilaði sinn fyrsta leik fyrir aðallið Man Utd í 4-0 sigri á Real Sociedad í Evrópudeildinni síðasta fimmtudag.

Shaw, sem hefur sjálfur átt mjög gott tímabil, er mjög ánægður með það sem hann hefur séð frá Diallo hingað til.

„Hann er enn mjög ungur en hann hefur komið inn á æfingar og það sést að hann er með mikið sjálfstraust," sagði Shaw.

„Það sést á því hvernig hann spilar. Hann er með frábæra fyrstu snertingu og er óhræddur við að keyra á menn. Hann er með mikla hæfileika."

„Það er augljóst að hann á framtíðina fyrir sér," sagði Shaw sem býst við að hann muni spila fleiri leiki með aðalliðinu á næstunni.

Spurður að því hvaða leikmanni hann myndi líkja Diallo við, þá sagði Shaw: „Það er áhugavert því Harry (Maguire) sagði við mig um daginn að hann minnti sig á Mahrez þegar hann var hjá Leicester... ég er sammála, hann minnir mig á Mahrez."

„Mahrez er auðvitað frábært leikmaður og það væri frábært fyrir United ef Amad næði sömu hæðum."
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner