Guimaraes, Isak, Kimmich, Diaz, Branthwaite, Mainoo og fleiri góðir í slúðri dagsins
   þri 21. mars 2023 14:37
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Leikið með sorgarbönd gegn Bosníu
Icelandair
Ísland mætir Bosníu á fimmtudaginn.
Ísland mætir Bosníu á fimmtudaginn.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Íslenska landsliðið mun spila með sorgarbönd í leik gegn Bosníu í undankeppni EM á fimmtudaginn.

Í þeim leik, sem og í næstum leikjum U17 og U19 landsliðanna, þá mun Ísland spila með sorgarbönd til að heiðra minningu Þuríðar Örnu Óskarsdóttur sem féll frá nýlega eftir löng og erfið veikindi.

Þuríður var dóttir Óskars Guðbrandssonar og Áslaugar Hinriksdóttur, en Óskar Örn er starfsmaður KSÍ.

KSÍ vottar fjölskyldunni innilega samúð. Blessuð sé minning Þuríðar Örnu.

U17 karla mætir Svartfjallalandi á morgun og U19 karla leikur við Tyrkland. Ákveðið hafði verið fyrir nokkru síðan að leika með sorgarbönd í leik U19 karla í virðingarskyni við allt það fólk sem lést eða á um sárt að binda vegna jarðskjálftanna sem skullu á Tyrklandi og Sýrlandi fyrr á árinu, og er ástæðan fyrir sorgarböndum í þeim leik því tvíþætt.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner