Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   lau 21. júlí 2018 16:41
Ívan Guðjón Baldursson
Óli Guðbjörns: Harpa var afgerandi
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stjarnan skoraði níu mörk á útivelli gegn Fylki í undanúrslitum Mjólkurbikarsins í dag.

Ólafur Guðbjörnsson þjálfari Stjörnunnar var mjög ánægður með frammistöðu sinna manna og er spenntur fyrir úrslitaleiknum.

„Þessi leikur var hálfgert furðudýr í raun og veru. Það var smá bras í byrjun og þær byrja á því að skora, síðan tókum við allt vald á vellinum. Þetta var sannfærandi og öruggur sigur og er ég mjög ánægður með mitt lið," sagði Óli.

Harpa setti fernu í leiknum og er Óli sammála fréttamanni um að hæfileikar hennar hafi verið afdrifaríkir í leiknum.

„Hún tók á skarið, það er gott þegar menn stíga svona upp. Við höfum fína sóknarlínu og þetta var liðsheildin í dag sem kláraði þetta, en Harpa var afgerandi, við getum alveg sagt það."

Óli segir það ekki skipta neinu máli hvort Stjarnan mæti Val eða Breiðablik í úrslitaleiknum.

„Það verður bara gaman á Laugardalsvelli eins og áður. Okkur líður vel þar og okkur langar að ná í þennan bikar sem er í boði."
Athugasemdir
banner
banner