„Auðvitað erum við búnir að bíða lengi. Það er mikilvægt að byrja á þremur stigum," sagði Jóhann Berg Guðmundsson, landsliðsmaður, eftir 2-0 sigur á Andorra í fyrsta leik Íslands í undankeppni EM 2020.
Lestu um leikinn: Andorra 0 - 2 Ísland
Leikskipulag Andorra snýst mikið um að fara í taugarnar á andstæðingnum.
„Á tímum var maður alveg að fara að snappa. Þetta er ótrúlega skrítin spilamennska. Það má varla snerta þá og þeir eru komnir í jörðina. Þeir eru góðir í föstum leikatriðum og það var erfitt að stoppa þá af í því. Við reyndum að gera okkar besta og 2-0 sigur hér er mjög gott."
„Við vorum rólegir. Við vissum að ef við myndum spila okkar leik þá myndum við vinna þennan leik. Þegar fyrsta markið kom var ég handviss um að við myndum vinna þennan leik."
Viðtalið er í heild sinni hér að ofan.
Athugasemdir