Amorim, Frank, Ten Hag, De Bruyne, Isak, Olise, Gyökeres og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 22. mars 2023 14:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kolo Muani gleymir ekki klúðrinu: Hefði getað breytt lífi mínu
Randal Kolo Muani.
Randal Kolo Muani.
Mynd: EPA
Franski sóknarmaðurinn Randal Kolo Muani viðurkennir að hann hugsi enn um dauðafærið sem hann fékk undir blálokin í úrslitaleiknum á HM í Katar.

Staðan var 3-3 þegar Kolo Muani slapp einn í gegn undir lokin. Emiliano Martinez, markvörður Argentínu, varði hins vegar ótrúlega vel frá framherjanum.

Argentína vann í vítaspyrnukeppninni og varð heimsmeistari.

„Þetta hefði getað breytt lífi mínu," sagði Kolo Muani við L'Equipe en hann er núna mættur aftur í landsliðsverkefni í fyrsta sinn eftir úrslitaleikinn á HM.

„Auðvitað hefði ég viljað setja boltann í netið en þetta gerðist og svona er lífið. Þetta gefur mér hugrekki til að halda áfram og setja boltann næst í markið. Ég mun ekki gleyma þessu, ég viðurkenni það alveg."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner