
Þór 2 - 0 Selfoss
1-0 Sigfús Fannar Gunnarsson ('33 )
2-0 Ragnar Óli Ragnarsson ('74 )
Rautt spjald: Sigfús Fannar Gunnarsson, Þór ('80)
Lestu um leikinn
1-0 Sigfús Fannar Gunnarsson ('33 )
2-0 Ragnar Óli Ragnarsson ('74 )
Rautt spjald: Sigfús Fannar Gunnarsson, Þór ('80)
Lestu um leikinn
Þór vann kærkominn sigur gegn Selfossi í Boganum í dag. Rafael Victor var í byrjunarliði Þórs í fyrsta sinn á tímabilinu eftir meiðsli. Hann fékk fyrsta færi leiksins en hann hitti ekki á markið úr dauðafæri.
Ívan Breki Sigurðsson fékk gott færi fyrir Selfoss en hitti ekki á rammann.
Stuttu síðar brutu Þórsarar ísinn. Sigfús Fannar Gunnarsson, Ibrahima Balde og Aron Ingi Magnússon spiluðu vel á milli sín og Sigfús átti frábært skot fyrir utan teiginn og boltinn fór í fjærhornið. Hans áttunda mark í Lengjudeildinni í sumar.
Sesar Örn Harðarson var nýkominn inn á hjá Selfossi þegar hann fékk gullið tækifæri til að jafna metin en hitti ekki boltann. Ragnar Óli Ragnarsson bætti öðru marki Þórs við þegar hann skoraði eftir hornspyrnu.
Undir lok leiksins fékk Sigfús Fannar sitt annað gula spjald og þar með rautt. Það kom ekki að sök því Þórssigur var staðreynd.
Þór stekkur úr 8. sæti í það fjórða með 14 stig en liðið hafði ekki unnið í síðustu þremur deildarleikjum. Selfoss er áfram á botninum með sex stig.
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. ÍR | 9 | 5 | 4 | 0 | 12 - 4 | +8 | 19 |
2. Njarðvík | 9 | 4 | 5 | 0 | 21 - 9 | +12 | 17 |
3. HK | 9 | 5 | 2 | 2 | 17 - 9 | +8 | 17 |
4. Þór | 9 | 4 | 2 | 3 | 20 - 17 | +3 | 14 |
5. Þróttur R. | 9 | 4 | 2 | 3 | 16 - 15 | +1 | 14 |
6. Völsungur | 9 | 4 | 1 | 4 | 15 - 19 | -4 | 13 |
7. Keflavík | 8 | 3 | 3 | 2 | 15 - 9 | +6 | 12 |
8. Grindavík | 8 | 3 | 2 | 3 | 22 - 19 | +3 | 11 |
9. Leiknir R. | 9 | 2 | 2 | 5 | 10 - 22 | -12 | 8 |
10. Fylkir | 9 | 1 | 4 | 4 | 10 - 14 | -4 | 7 |
11. Fjölnir | 9 | 1 | 3 | 5 | 11 - 19 | -8 | 6 |
12. Selfoss | 9 | 2 | 0 | 7 | 6 - 19 | -13 | 6 |
Athugasemdir