Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 16:45
Brynjar Ingi Erluson
Brighton leggur fram 20 milljóna punda tilboð í leikmann Flamengo
Mynd: EPA
Brighton hefur lagt fram formlegt 20 milljóna punda tilboð í Wesley Franca, leikmann Flamengo í Brasilíu.

Telegraph greinir frá því að Wesley, sem er 21 árs gamall hægri bakvörður, sé afar eftirsóttur.

Chelsea og Manchester City hafa bæði verið sögð á eftir honum, en það er Brighton sem hefur ákveðið að rífa í gikkinn og leggja fram 20 milljóna punda tilboð.

Wesley spilaði í fræknum 3-1 sigri Flamengo á Chelsea á HM félagsliða á dögunum, en mótið er góður gluggi fyrir Evrópuliðin til að skoða öfluga leikmenn sem spila í öðrum heimsálfum.

Talið er að Flamengo sé reiðubúið að selja Wesley í sumar og að hann hafi sjálfur mikinn áhuga á að fara til Evrópu.

Wesley spilaði fyrstu A-landsleiki sína með Brasilíu í mars á þessu ári og var þá í hópnum sem mætti Paragvæ fyrr í þessum mánuði.
Athugasemdir
banner