Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 18:40
Jóhann Þór Hólmgrímsson
HM félagsliða: Yildiz með tvennu í sigri Juventus
Mynd: EPA
Juventus 4 - 1 WAC Casablanca
1-0 Abdelmounaim Boutouil ('6 , sjálfsmark)
2-0 Kenan Yildiz ('16 )
2-1 Thembinkosi Lorch ('25 )
3-1 Kenan Yildiz ('69 )
4-1 Dusan Vlahovic ('90 , víti)

Juventus er svo gott sem komið áfram í 16-liða úrslit á HM félagsliða eftir sigur á Wydad frá Marokkó í dag.

Juventus náði tveggja marka forystu eftir stundafjórðung en Kenan Yildiz skoraði annarð mark liðsins eftir að Adeelmouanim Boutounil varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.

Thembinkosi Lorch sem er á láni hjá Wydad frá Mamelodi Sundowns frá Suður Afríku sem er einnig á HM félagsliða minnkaði muninn en Kenan Yildiz bætti öðru marki sínu við og Dusan Vlahovic innsiglaði sigur Juventus með marki úr vítaspyrnu.

Juventus er á toppi G-riðils með sex stig. Man City mætir Al-AAin í nótt og með sigri eru evrópsku liðin með öruggt sæti í 16-liða úrslitum fyrir lokaumferðina þar sem liðin mætast og berjast um toppsætið.
Athugasemdir
banner