Theo Hernandez hefur snúist hugur og er opinn fyrir því að ganga til liðs við sádí arabíska félagsins Al-Hilal.
Al-Hilal náði samkomulagi við AC Milan um kaup á bakverðinum fyrir HM félagsliða en hann hafnaði samningstilboði.
Hann vildi halda áfram að spila í Evrópu en ítalski fréttamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá því að leikmaðurinn sé nú opinn fyrir því að ganga til liðs við Al-Hilal.
Fabrizio Romano segir að Milan og Al-Hilal séu með samkomulag en nú er bara beðið eftir því að Hernandez taki ákvörðun.
Athugasemdir