Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 18:25
Daníel Smári Magnússon
Byrjunarlið KA og Víkings: Daníel snýr aftur á Brekkuna
Daníel Hafsteinsson snýr aftur á sinn gamla heimavöll. Hann varð bikarmeistari með uppeldisfélaginu í fyrra.
Daníel Hafsteinsson snýr aftur á sinn gamla heimavöll. Hann varð bikarmeistari með uppeldisfélaginu í fyrra.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA og Víkingur mætast á Greifavellinum í kvöld í Bestu-deild karla. Liðin hafa átt ólíku gengi að fagna í sumar, en leikir þessara liða hafa gjarnan verið jafnir og skemmtilegir á Akureyri.

Þá er þetta heimkomuleikur fyrir Daníel Hafsteinsson. Hann er uppalinn á Brekkunni, en söðlaði um í desember síðastliðnum, eftir að hafa verið mikilvægur partur af bikarævintýri KA í fyrra. Leikurinn hefst klukkan 19:15


Lestu um leikinn: KA 0 -  2 Víkingur R.

Heimamenn í KA eru án Rodri, en Spánverjinn tekur út leikbann í dag eftir að hafa fengið sitt fjórða gula spjald í tapleiknum  gegn Vestra. Hrannar Björn Steingrímsson, Jakob Snær Árnason og Dagur Ingi Valsson koma inn í lið KA. Jóan Símun Edmundsson og Guðjón Ernir Hrafnkelsson fá sér sæti á bekknum.

Víkingar gera tvær breytingar frá sigurleiknum gegn KR. Inn í byrjunarliðið koma þeir Ali Basem Almosawe og Nikolaj Hansen, en á bekkinn setjast Matthías Vilhjálmsson og Helgi Guðjónsson. 


Byrjunarlið KA:
12. William Tönning (m)
2. Birgir Baldvinsson
5. Ívar Örn Árnason (f)
8. Marcel Ibsen Römer
10. Hallgrímur Mar Steingrímsson
11. Ásgeir Sigurgeirsson
22. Hrannar Björn Steingrímsson
25. Dagur Ingi Valsson
28. Hans Viktor Guðmundsson
29. Jakob Snær Árnason
77. Bjarni Aðalsteinsson

Byrjunarlið Víkingur R.:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason
11. Daníel Hafsteinsson
12. Ali Basem Almosawe
15. Róbert Orri Þorkelsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson
23. Nikolaj Hansen
25. Valdimar Þór Ingimundarson
32. Gylfi Þór Sigurðsson
Athugasemdir
banner