Jon Obi Mikel, fyrrum leikmaður Chelsea, segist ótrúlega hrifinn af enska miðjumanninum Jobe Bellingham sem gekk í raðir Borussia Dortmund á dögunum.
Bellingham, sem er 19 ára gamall, ákvað að feta í fótspor bróður síns, Jude, sem spilaði með Dortmund frá 2020 til 2023.
Jobe, sem er miðjumaður eins og bróðir sinn, byrjaði sinn fyrsta leik með Dortmund í 4-3 sigri á Mamelodi Sundowns á HM félagsliða um helgina og skoraði sitt fyrsta mark aðeins nokkrum dögum eftir að hafa komið frá Sunderland.
Mikel segir hann minna sig á Frank Lampard, sem raðaði inn mörkum fyrir Chelsea, oft með því að mæta með seinni skipunum inn í teiginn.
„Það er oft auðvelt sem miðjumaður að senda boltann bara frá þér og standa kyrr, en nei hann vill mæta seint inn í teiginn og vera á svæðinu þegar boltinn mætir.“
„Hann minnir mig á einn leikmann sem ég spilaði með, Frank Lampard. Hann skoraði 20 mörk eða meira á hverju tímabili með því að mæta á réttum tíma í teiginn. Ég held að Jobe muni skora mörg mörk fyrir Dortmund.“
„Það sem ég er hrifnastur af er hvað hann er beinskeyttur. Um leið og hann fær boltann horfir hann upp, sendir boltann áfram og tekur hlaupið. Hann vill mæta í teiginn á réttum tíma og það er nákvæmlega það sem hann gerði,“ sagði Mikel við DAZN.
?????? Jobe Bellingham (19) SCORES on his first start for Borussia Dortmund! ???????????????????????????? pic.twitter.com/8BoC7b8hX5
— EuroFoot (@eurofootcom) June 21, 2025
Athugasemdir