Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 19:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Viking styrkir stöðu sína á toppnum
Hilmir Rafn Mikaelsson
Hilmir Rafn Mikaelsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Viking styrkti stöðu sína á toppnum í norsku deildinni í kvöld með sigri gegn Fredrikstad.

Hilmir Rafn Mikaelsson var ónotaður varamaður þegar Viking vann 3-0.

Eins og fyrr segir er Viking á toppnum en liðið er með 32 stig eftir 13 umferðir. Liðið er níu stigum á undan Íslendingaliði Brann sem á leik til góða en liðið tapaði gegn Bodö/Glimt í gær.

Annað Íslendingalið, Rosenborg, er í 3. sæti tíu stigum á eftir Viking. Ísak Snær Þorvaldsson kom inn á sem varamaður í 4-1 tapi gegn Kristiansund í dag.
Athugasemdir
banner