Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 18:28
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Byrjunarlið ÍA og Stjörnunnar: Dean Martin gerir tvær breytingar
Andri Rúnar Bjarnason
Andri Rúnar Bjarnason
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Dean Martin stýrir liði ÍA gegn Stjörnunni í kvöld eftir að Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn en Lárus Orri Sigurðsson tekur síðan við liðinu.

Lestu um leikinn: ÍA 0 -  3 Stjarnan

Deano gerir tvær breytingar á liðinu sem steinlá 4-1 gegn Aftureldingu í síðustu umferð. Oliver Stefánsson er í banni og Haukur Andri Haraldsson sest á bekkinn. Baldvin Þór Berndsen og Ísak Máni Guðjónsson koma inn í liðið. Hlynur Sævar Jónsson tekur einnig út leikbann.

Stjarnan lék síðast í Mjókurbikarnum þar sem liðið vann Keflavík í 8-liða úrslitum. Emil Atlason og Örvar Logi Örvarsson fá sér sæti á bekknum frá þeim leik. Guðmundur Kristjánsson og Andri Rúnar Bjarnason koma inn í liðið.
Byrjunarlið ÍA:
1. Árni Marinó Einarsson (m)
3. Johannes Vall
5. Baldvin Þór Berndsen
9. Viktor Jónsson
13. Erik Tobias Sandberg
16. Rúnar Már S Sigurjónsson (f)
17. Gísli Laxdal Unnarsson
19. Marko Vardic
20. Ísak Máni Guðjónsson
22. Ómar Björn Stefánsson
66. Jón Gísli Eyland Gíslason

Byrjunarlið Stjarnan:
12. Árni Snær Ólafsson (m)
4. Þorri Mar Þórisson
5. Guðmundur Kristjánsson (f)
6. Sindri Þór Ingimarsson
7. Örvar Eggertsson
8. Jóhann Árni Gunnarsson
10. Samúel Kári Friðjónsson
18. Guðmundur Baldvin Nökkvason
23. Benedikt V. Warén
29. Alex Þór Hauksson
99. Andri Rúnar Bjarnason
Athugasemdir
banner