Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 20:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Frimpong: Deildin mun elska Wirtz
Mynd: Liverpool
Florian Wirtz er genginn til liðs við LIverpool frá Leverkusen fyrir metfé.

Liverpool borgaði 116 milljónir punda fyrir hann en það gerir hann dýrasta leikmann í sögu úrvalsdeildarinnar.

Jeremie Frimpong gekk einnig til liðs við Liverpool frá Leverkusen fyrr í sumar en hann ræddi við Sky Sports um Wirtz.

„Hann er mjög sérstakur leikmaður og leggur mikið á sig. Deildin mun elska hann, ég þarf ekki að segja of mikið, fylgist bara með honum. Hann þrífst undir pressu," sagði Frimpong.
Athugasemdir
banner
banner