Guehi tilbúinn að sitja út samninginn - Há laun Rodrygo hindrar skipti hans til Arsenal - Höjlund til Napoli?
   sun 22. júní 2025 17:36
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Bayern horfir til Liverpool og Arsenal
Mynd: EPA
Bayern Munchen horfir mikið til Liverpool í leit að leikmönnum en þýska félagið hefur sýnt Cody Gakpo áhuga undanfarið.

Hann er hins vegar talinn of dýr en Liverpool vill fá um 70 milljónir punda fyrir hann.

Þýski miðillin Bild greinir frá því að Bayern hefur einnig áhuga á Luis Diaz og talið að Liverpool sé viljugra að láta hann af hendi.

Bild greinir einnig frá því að Gabriel Martinelli sé á óskalista þýska félagsins en félagið er í leit að arftaka Leroy Sane sem gekk til liðs við Galatasaray í sumar.

Bayern vildi fá Nico Williams frá Athletic Bilbao en útlit er fyrir að hann fari til Barcelona.
Athugasemdir
banner