Newcastle býr sig undir nýtt tilboð frá Liverpool - Úlfarnir vilja Strand Larsen - Everton hefur áhuga á Ake
   fös 22. ágúst 2025 20:57
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta deild kvenna: Breiðablik styrkir stöðu sína á toppnum
Kvenaboltinn
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 5 - 0 Tindastóll
1-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('2 )
2-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('11 )
3-0 Agla María Albertsdóttir ('12 )
4-0 Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('21 )
5-0 Agla María Albertsdóttir ('29 )
Lestu um leikinn

Breiðablik styrkti stöðu sína á toppi Bestu deildar kvenna þegar liðið vann öruggan sigur á Tindastóli í kvöld.

Berglind Björg Þorvaldsdóttir kom Breiðabliki yfiir strax í upphafi leiks. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir bætti öðru markinu við eftir 11 mínútna leik og strax í kjölfarið kom þriðja markið þegar Agla María Albertsdóttir skoraði.

Berglind bætti síðan við sínu öðru marki og fjórða marki Breiðabliks áður en Agla María bætti við sínu öðru marki og fimmta marki liðsins.

Staðan var því 5-0 í hálfleik en fleiri urðu mörkin ekki. Breiðablik er sem fyrr á toppnum með 40 stig, átta stigum á undan FH en Tindastóll er í 8. sæti með 14 stig.
Besta-deild kvenna
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Breiðablik 15 13 1 1 61 - 11 +50 40
2.    FH 14 10 2 2 35 - 17 +18 32
3.    Þróttur R. 14 9 2 3 27 - 15 +12 29
4.    Valur 15 7 3 5 22 - 21 +1 24
5.    Þór/KA 14 7 0 7 27 - 25 +2 21
6.    Stjarnan 14 5 1 8 19 - 30 -11 16
7.    Fram 14 5 0 9 20 - 38 -18 15
8.    Tindastóll 14 4 2 8 18 - 29 -11 14
9.    Víkingur R. 14 4 1 9 26 - 35 -9 13
10.    FHL 14 1 0 13 8 - 42 -34 3
Athugasemdir
banner