
Vestri hefur tekið forystuna í úrslitaleik Mjólkurbikarsins gegn Val sem fram fer á Laugardalsvelli.
Bræðurnir Patrik Pedersen og Jeppe Pedersen eigast við. Patrik er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar en Jeppe skoraði sitt annað mark fyrir Vestra fyrr í þessum mánuði.
Bræðurnir Patrik Pedersen og Jeppe Pedersen eigast við. Patrik er markahæsti leikmaður í sögu efstu deildar en Jeppe skoraði sitt annað mark fyrir Vestra fyrr í þessum mánuði.
Lestu um leikinn: Valur 0 - 1 Vestri
Hann er búinn að koma Vestra yfir í kvöld eftir rúmlega tuttugu mínútna leik en markið var af dýrari gerðinni.
„Jeppe Pedersen fær boltann vel fyrir utan teig, mundar skotfótinn og þrumar boltanum í samskeytin. Yngri Pedersen bróðirinn brýtur ísinn og stuðningsmenn syngja hið sívinsæla, Vi har Pedersen, lag!" Skrifaði Kári Snorrason í textalýsingunni hér á Fótbolta.net um markið.
Rosalegt mark frá Jeppe Pedersen! ???? pic.twitter.com/97s2uUmSF0
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) August 22, 2025
Athugasemdir