Miðjumaður Everton orðaður við Man Utd - Ramos til Liverpool?
Kristall Máni: Hef alltaf vitað að fótboltahæfileikarnir hverfa ekki
Jóladagatalið: Stólar fullir af hálfvitum
Jóladagatalið: „Vonandi hefur Gummi Ben eitthvað lært af þessu“
Kominn í grænt eftir eitt tímabil í Svíþjóð - „Eftir það tók ég ákvörðun um að fara annað“
Ætlaði ekki að koma heim - „Þegar ég talaði við Óskar lá þetta fyrir“
Jóladagatalið: Kristján Óli eftir að hafa skorað ljótasta markið á ferlinum
Jóladagatalið: Auðunn Blöndal og Gaui Þórðar í geitungavandræðum
Ísak bendir á augljóst vandamál: Erum ekki nógu góðir þar
Jóladagatalið: Allir á þjóðhátið, það er skylda hjá mér!
Æfingaleikur: Aron Kristófer skoraði frá miðju gegn Leikni
Jóladagatalið: Þið vitið aldrei neitt um okkur
„Láki tengdi okkur við góðan mann erlendis"
Ævintýraþjálfari Völsungs: Þegar þú ferðast um heiminn verður þú að taka ákvarðanir hratt
Ólafur Ingi: Heilt yfir stoltur en fannst við vera pínu klaufar
Margt í gangi í hausnum á Damir fyrir leikinn - „Spurðu þá sem stjórna klúbbnum“
Höskuldur: Þau eru ekkert verðugri en við að vera þarna
Anton Ari: Sannaði fyrir mér að við áttum alveg erindi hingað
Jóladagatalið: Frasabók Margrétar Láru
Arnór Gauti: Þetta er bara sturlun
Sá fyrir sér að ljúka ferlinum með Blikum: Því miður vildi klúbburinn leita eitthvað annað
banner
   sun 23. júní 2019 18:50
Sverrir Örn Einarsson
Hilmar Árni: Vorum lengi í gang
Hilmar Árni Halldórsson
Hilmar Árni Halldórsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Himar Árni Halldórsson átti góðan leik þegar Stjarnan fékk Fylki í heimsókn á Samsung völlinn í dag.

Eftir að staðan hafði verið jöfn 1-1 þegar flautað var til hálfleiks gerðu Stjörnumenn 4 mörk í þeim síðari og skoraði Hilmar 2 af þeim. Lokatölur því 5-1 Stjörnunni í vil.

Lestu um leikinn: Stjarnan 5 -  1 Fylkir

„Seinni hálfleikur var flottur hjá okkur, við byrjuðum ekki nægjanlega vel og vorum lengi að komast í gang og Fylkir voru bara flottir og voru bara betri en við til að byrja með," sagði Hilmar Árni um leik sinna manna í dag.

Stjarnan hefur verið gagnrýnd nokkuð framan af sumri og hefur liðinu gegnið illa að tengja saman sigra og að klára leikina.
Hvað finnst Hilmari vera helsti munurinn á leik liðsins í dag og áður í sumar?

„Það er erfitt að segja við höfum verið góðir í mörgum leikjum í kannski 60-70 mínútur og slæmu kaflarnir okkar hafa verið frekar slæmir. Í seinni hálfleik náðum við að halda svona nokkuð heilsteyptri frammistöðu en auðvitað má alltaf gera betur en kannski var það að við náðum að klára seinni hálfleikinn almennilega.“

Sagði Himar Árni Halldórsson en allt viðtalið má sjá hér að ofan.
Athugasemdir
banner