Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
banner
   sun 23. september 2018 16:56
Orri Rafn Sigurðarson
Kristján Guðmunds: Sýndi að hann er tilbúinn í þetta
Kristján Guðmundsson
Kristján Guðmundsson
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
ÍBV vann sterkan 2-1 sigur á Stjörnunni á Hásteinsvelli í dag í síðasta heimaleik ÍBV í sumar.

„Mér líður mjög vel að hafa sigrað í leiknum og þær breytingar sem við gerðum á liðinu skilaði sér vel inn í leikinn. Við eigum mjög góða kafla í leiknum en Stjarnan skorar mark og eiga þá svona eina góða kaflann í sínum leik. Við spiluðum svo vel í seinni hálfleik," sagði Kristján Guðmundsson, þjálfari ÍBV, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: ÍBV 2 -  1 Stjarnan

Eftir hörmulegan seinni hálfleik gegn Val í síðustu umferð svöruðu leikmenn ÍBV með frábærum leik í dag.

„Við gáfum tóninn í fyrstu sókninni þegar Víðir á skot sem fauk næstum því inn. Þá kveiktum við í fólkinu og vil ég skila þakklæti til þeirra að koma og horfa á okkur, það er miklu skemmtilegra að spila þegar það eru svona margir í stúkunni og heyrist vel í þeim og ég vil þakka þeim fyrir að mæta á síðasta heimaleikinn og ég er hrikalega glaður að geta gefið þeim sigur."

Eyþór Orri Ómarsson kom inn á 60. mínútu og breytti leiknum. Strákurinn er fæddur 2003 og sýndi í dag hvers megnugur hann er.

Við settum upp fyrir leikinn að Breki ætti að djöflast í þeim til að byrja með og svo settum við Eyþór inn. Hann sýndi það að hann er tilbúinn í þetta og sýndi það í teignum. Kannski hefðum við átt að spila honum meira í sumar en hann er búin að vera í öðrum verkefnum með 3. flokki og 2. flokki sem og landsliðum. Framtíðin er björt fyrir hann ef hann heldur rétt á spöðunum eins og sagt er," sagði Kristján að lokum

Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.
Athugasemdir
banner