Barcelona vill Díaz frá Liverpool - Úlfarnir skoða markverði - City til í að hlusta á tilboð í Grealish
   sun 24. maí 2020 16:10
Ívan Guðjón Baldursson
Sjáðu mörkin: Adrian skoraði fernu
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Frammistaða Adrian Justinussen gegn AB Argir í dag hefur vakið mikla athygli. Hann skoraði fernu og lagði eitt upp í fimm marka sigri HB Torshavn.

Adrian lagði fyrsta markið upp með aukaspyrnu og skoraði næstu þrjú beint úr aukaspyrnum. Það þriðja var af löngu færi og breytti boltinn um stefnu eftir að hafa farið af varnarveggnum.

Fjórða mark Adrian var afar laglegt og má sjá þau öll hér fyrir neðan.

Mikil umræða hefur skapast á Twitter þar sem íslenskir fótboltaáhugamenn vilja sjá Adrian taka næsta skref ferilsins í Pepsi Max-deildinni.

Heimir Guðjónsson, þjálfari Vals, þekkir vel til Adrian eftir að hafa þjálfað hann hjá HB.

Færeyjar: Adrian skoraði fernu á korteri - Heimir hefur áhuga


Athugasemdir
banner
banner
banner