Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 24. október 2020 07:30
Brynjar Ingi Erluson
Klopp stoltur af Rashford - „Þetta er til fyrirmyndar"
Jürgen Klopp er ánægður með enska framherjann Marcus Rashford
Jürgen Klopp er ánægður með enska framherjann Marcus Rashford
Mynd: Getty Images
Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, segist ótrúlega stoltur af Marcus Rashford, framherja Manchester United, og allt sem hann er að gera fyrir hungruð börn á Bretlandseyjum.

Rashford hefur nýtt ímynd sína og fylgi í að berjast fyrir því að börn sem lifa við erfiðar aðstæður fái gefins mat í skólum. Þessir tímar eru sérstaklega erfiðir og er rödd Rashford ansi hávær.

Klopp ræddi við blaðamenn um framtak enska framherjans og segist hann afar stoltur af þessum öfluga leikmanni.

„Ég er ekki viss um að ég geti fundið betri orð en allt klára fólkið hefur sagt nú þegar. Það sem Marcus hefur byrjað á er frábært og til fyrirmyndar," sagði Klopp.

„Þrátt fyrir allan þennan ríg á milli Liverpool og Manchester United og allt annað en á svona augnablikum sem fótboltamenn og sem manneskjur þá stöndum við alltaf saman."

„Mér finnst magnað að sjá fólkið sem stýrir þessu og eru ekki að gera það vel þá kemur strákur sem elst upp við erfiðar aðstæður og er gæddur miklum hæfileikum. Hann gleymdi aldrei hvaðan hann kom. Það að hann þurfi að gera þetta er skömm en á sama tíma yndislegt. Ég vona að móðir hans sé afar stolt af honum. Ég þekki hann ekki og samt er ég ótrúlega stoltur af honum og það gerir þetta svolítið flókið því hann spilar fyrir United!"

„Núna er hann kominn í þetta hlutverk og hann er fyrirmynd og það er frábært. Þetta mun ekki hafa áhrif á fótboltann hjá honum en eins og ég segi þetta er frábært og ég er ánægður með þetta,"
sagði hann í lokin.
Athugasemdir
banner
banner
banner