Þrjú lið eru með tvo fulltrúa í liði vikunnar hjá Garth Crooks á BBC en enginn leikmaður Brentford ratar í liðið eftir 3-3 jafntefli gegn Liverpool.
Aston Villa vann Manchester United nokkuð óvænt, 2-0. Kourtney Hause og Emilano Martinez fá báðir sæti í liðinu fyrir þá frammistöðu og þá vann Manchester City mikilvægan, 1-0, sigur á Chelsea.
Liverpool gerði 3-3 jafntefli við nýliða Brentford, Everton vann Norwich 2-0 og West Ham lagði Leeds með tveimur mörkum gegn einu.
Leicester og Burnley gerðu 2-2 jafntefli og þá gerðu Watford og Newcastle einnig jafntefli, 1-1. Wolves vann Southampton 1-0 og Arsenal vann svo Tottenham Hotspur í nágrannaslag, 3-1.
Markvörður: Emiliano Martinez (Aston Villa) - Varði vel í sigrinum á Man Utd og tók Bruno Fernandes á taugum í vítinu.
Ruben Dias (Man City) - Klettur í vörn City gegn Chelsea og bjargaði þeim á ögurstundu frá Mateo Kovacic.
Aymeric Laporte (Man City) - Hann, ásamt Dias, náði að halda Romelu Lukaku í skefjum og steig ekki feilspor.
Jordan Henderson (Liverpool) - Spilaði vel á miðjunni í jafnteflinu gegn Brentford og lagði upp fyrsta markið fyrir Diogo Jota.
Abdoulaye Doucoure (Everton) - Skoraði annað markið og alger lykilmaður í liðinu í sigrinum á Norwich.
Emile Smith-Rowe (Arsenal) - Mögnuð frammistaða gegn Tottenham. Skoraði fyrsta markið og lagði svo upp annað fyrir Aubameyang.
Michail Antonio (West Ham) - Tók út bann í síðasta leik en kom inn í leikinn gegn Leeds og gerði sigurmarkið í lokin.
Athugasemdir