Argentína lagði Jamaíku að velli í vináttulandsleik í gær og náði einn sprækur áhorfandi að ryðja sér leið inn á völlinn.
Sá var með skýrt markmið, hann ætlaði sér að finna stórstjörnuna Lionel Messi og láta hann gefa sér áritun.
Stuðningsmaðurinn hljóp að Messi og varð argentínska stjarnan hissa þegar honum var réttur penni. Hann áttaði sig þó fljótt á stöðunni, enda vanur maður, og rétt náði að árita bak stuðningsmannsins áður en hann var tæklaður af gæslunni. Messi var heppinn að sleppa án þess að vera tæklaður með.
Sjón er sögu ríkari og má sjá þetta skondna atvik hér fyrir neðan.
Athugasemdir