Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   þri 29. september 2020 21:58
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Eric Dier: Náttúran kallaði
Mynd: Getty Images
Eric Dier þurfti að fara á klósettið þegar hann hljóp út af í miðjum leik gegn Chelsea í enska deildabikarnum áðan.

Dier tók sprettinn út af, var fljótur á klósettinu og hljóp svo aftur inn á. Hann ræddi við BBC eftir leik.

„Þetta var ekki auðvelt eftir að hafa spilað á sunnudaginn, kannski er það ástæðan fyrir því að ég þurfti að hlaupa út af en við komumst í gegnum þetta," sagði Dier.

„Jose var ekki ánægður en það var ekkert sem ég gat gert. Náttúran kallaði."

Jose Mourinho, stjóri Tottenham, hljóp á eftir Dier inn í klefa og rak á eftir honum. Hann sagði: „Ég varð að setja pressu á hann að koma aftur en hann er frábær fyrirmynd fyrir alla."
Athugasemdir
banner
banner
banner