Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   þri 29. september 2020 18:16
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jóhann Berg á æfingu í dag - Nær hann Rúmeníu?
Jóhann Berg í æfingaleik með Burnley.
Jóhann Berg í æfingaleik með Burnley.
Mynd: Heimasíða Burnley
Jóhann Berg Guðmundsson er byrjaður að æfa aftur með Burnley. Hann er að stíga upp úr meiðslum.

Jóhann, sem hefur verið gríðarlega óheppinn með meiðsli undanfarna mánuði, meiddist gegn Sheffield United í deildabikarnum fyrr í þessum mánuði.

Jóhann var borinn af velli eftir ljóta tæklingu frá Jack Robinson snemma leiks.

Óttast var að meiðslin væru mjög slæm en þau eru greinilega ekki eins slæm og óttast var í fyrstu.

Ísland mætir Rúmeníu í undanúrslitum umspilsins fyrir EM eftir rúma viku og spurning hvort Jóhann Berg verði með þar. Það er alla vega jákvætt að hann sé byrjaður aftur að æfa.


Athugasemdir
banner
banner
banner