Dayot Upamecano gekk til liðs við Bayern Munchen frá RB Leipzig síðasta sumar en hann náði ekki að sína sitt rétta andlit á sínu fyrsta tímabili í Munchen.
Tímabilið í ár hefur hins vegar farið vel af stað fyrir hann en samkvæmt þýska blaðamanninum Philipp Kessler fór Upamecano óhefðbundnar leiðir til að bæta leik sinn.
Upamecano var í miklum vandræðum með röddina sína á síðustu leiktíð en honum var mjög illt í raddböndunum eftir hvern einasta leik.
„Hann leitaði sér aðstöðar, hjá óperusöngvara. Hann kenndi honum að nota raddböndin varlega en á sama tíma af meiri krafti," sagði Kessler.
Athugasemdir