Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   mið 30. september 2020 17:32
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: KFS upp um deild eftir sigur í Hveragerði
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hamar 0 - 1 KFS (0-2 samanlagt)
0-1 Hallgrímur Þórðarson ('63)

KFS er komið upp í þriðju deild eftir sigur gegn Hamri í Hveragerði í dag. Hallgrímur Þórðarson gerði eina mark leiksins eftir atgang í vítateig Hamars sem tókst ekki að hreinsa boltann frá eftir aukaspyrnu utan af velli.

KFS og Hamar mættust í undanúrslitum í úrslitakeppni fjórðu deildar og höfðu Eyjamenn betur 1-0 í fyrri leiknum á heimavelli.

Ian Jeffs hefur sinnt lykilhlutverki í liði KFS og er búinn að skora 8 mörk í 9 leikjum á árinu.

KFS fer upp um deild ásamt sigurvegaranum úr leik ÍH gegn Kormáki/Hvöt. Sá leikur fer fram í Skessunni og hefst klukkan 18:30, en fyrri leik liðanna lauk með 1-1 jafntefli.



Markaskorarar af urslit.net
Athugasemdir
banner
banner
banner