Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
Nýir tímar í Laugardalnum - „Finnst bara tilvalið að með því fylgi nýtt merki“
Haukur Páll: Ekki spurning um að koma mönnum fyrir
Heimir Guðjóns: Hefði verið gult spjald í fyrra
Gylfi Þór: Skrítið að spila gegn liði sem ég var hjá í 10 ár
Úlli: Fékk held ég nóg af liðsfélögum sínum
   fös 14. júní 2019 21:30
Arnar Daði Arnarsson
Jósef: Veit ekki hvernig þessar helvítis reglur eru
Jósef Kristinn.
Jósef Kristinn.
Mynd: Fótbolti.net - Ingunn Hallgrímsdóttir
Jósef Kristinn Jósefsson leikmaður Stjörnunnar var sár og svekktur eftir 2-2 jafntefli liðsins gegn FH í Hafnarfirðinum í kvöld.

Stjarnan komst í 2-0 um miðbik seinni hálfleiks en í kjölfarið komu tvö mörk FH úr hornspyrnu á innan við tveimur mínútum.

Lestu um leikinn: FH 2 -  2 Stjarnan

„Við vorum komnir í góða stöðu en við verðum eiginlega að kenna sjálfum okkur um þetta. Við erum komnir 2-0 yfir og vorum að spila góða vörn fannst mér en síðan köstum við þessu frá okkur á tveimur mínútum. Það er alveg glórulaust. Við eigum ekki að gera þetta.

Stjarnan vildi fá vítaspyrnu í uppbótartíma þegar fyrirgjöf Jósefs endaði í hendinni á Pétri Viðarssyni varnarmanni FH.

Ívar Orri lét leikinn hinsvegar halda áfram og dæmdi ekkert.

„Auðvitað er maður pirraður í mómentinu og þetta fer í hendina á honum. Hvort sem hún var upp við líkamann eða ekki þá fór boltinn allavegana í hendina á honum. Boltinn hefði farið beint fyrir á Gumma eða Baldur. Ég veit ekki hvernig þessar helvítis reglur eru," sagði Jósef Kristinn.

Viðtalið má sjá í heild sinni hér fyrir ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner