Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
   mán 02. febrúar 2026 08:08
Elvar Geir Magnússon
Jacquet í læknisskoðun hjá Liverpool
Jacquet í leik með U21 landsliði Frakklands.
Jacquet í leik með U21 landsliði Frakklands.
Mynd: EPA
Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 í kvöld.

Liverpool hefur unnið baráttuna um varnarmanninn tvítuga Jérémy Jacquet hjá Rennes. Enskir fjölmiðlar greina frá því að hann hafi flogið til Englands í læknisskoðun.

Liverpool er að kaupa leikmanninn á 60 milljónir punda en hann mun þó ekki klæðast treyjunni á þessu tímabili heldur koma í sumar. Sagt er að hann skrifi undir samning til 2031 með möguleika á ári til viðbótar.

Liverpool hefur unnið að því að fá miðvörð, meðal annars þar sem Ibrahima Konate er að renna út á samning.

Jacquet velur Liverpool frekar en Chelsea, þar sem hann telur sig eiga greiðari leið inn í byrjunarliðið á Anfield heldur en á Stamford Bridge. Það er mjög mikið af ungum og efnilegum miðvörðum á samningi hjá Chelsea og því er Jacquet spenntari fyrir Liverpool.


Athugasemdir
banner
banner
banner