Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   þri 10. mars 2026 22:33
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Lengjubikar kvenna: Blikar ekki í vandræðum
Kvenaboltinn
Hrafnhildur Ása skoraði tvennu.
Hrafnhildur Ása skoraði tvennu.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Breiðablik 7 - 0 ÍBV
1-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('5 )
2-0 Líf Joosdóttir van Bemmel ('9 )
3-0 Agla María Albertsdóttir ('19 )
4-0 Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('34 )
5-0 Edith Kristín Kristjánsdóttir ('45 )
6-0 Agla María Albertsdóttir ('50 )
7-0 Bára Björk Joelsdóttir ('91 )

Breiðablik átti ekki í vandræðum með ÍBV í Lengjubikar kvenna í kvöld.

Blikar blésu til markaveislu gegn Víkingum á dögunum og það sama gerðist í kvöld. Íslands- og bikarmeistararnir skoruðu nefnilega fimm mörk í fyrri hálfleiknum.

Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir kom Blikum á bragðið og hún bætti við öðru marki áður en hálfleikurinn kláraðist. Líf Joosdóttir van Bemmel, Agla María Albertsdóttir og Edith Kristín Kristjánsdóttir voru einnig á skotskónum.

Blikar bættu við tveimur mörkum í seinni hálfleiknum og þar voru að verki Agla María og Bára Björk Joelsdóttir, sem er fædd árið 2011.

Breiðablik er með sex stig eins og Víkingur og Valur á meðan ÍBV er með eitt stig. ÍBV á eftir að spila við Víking og Blikar eiga eftir að spila við Fram. Blikar eru mjög líklegar í undanúrslit þar sem þær eru með talsvert betri markatölu en Valur.
Athugasemdir
banner