Liverpool með augastað á Diaby - Pocchetino á blaði hjá Real - Juventus hefur áhuga á Djed Spence
   mið 11. mars 2026 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Barton þarf að greiða Aluko tæpar 57 milljónir
Joey Barton.
Joey Barton.
Mynd: EPA
Lífið er ekki að leika við fyrrum fótboltamanninn Joey Barton þessa dagana.

Um síðustu helgi var hann handtekinn grunaður um líkamsárás nærri golfvelli í Liverpool. Atvikið átti sér stað á síðasta sunnudag, skammt frá Huyton and Prescot golfklúbbnum sem er í Liverpool. Lögregla mætti á staðinn og fann mann með áverka á andliti og rifbeinum.

Svo var hann í gær dæmdur sekur í meiðyrðamáli gegn Eni Aluko, fyrrum landsliðskonu Englands.

Aluko, sem hefur starfað sem sérfræðingur í sjónvarpi síðustu ár, stefndi Barton eftir að hann birti 48 færslur um hana á samfélagsmiðlinum X árið 2024.

Í einni færslunni var Barton búinn að klippa höfuð Aluko inn á líkama Rosemary West, sem er einn frægasti raðmorðingi í sögu Bretlands.

Lögmaður Aluko sagði Barton hafa staðið fyrir „rógburðarherferð" en hann var dæmdur til að greiða Aluko 339 þúsund pund í miskabætur. Það eru tæpar 57 milljónir íslenskra króna. Fyrsta greiðsla, 100 þúsund pund auka vaxta, þarf að berast fyrir 24. mars næstkomandi.

Barton hefur oft áður komist í kast við lögin en hann var sakfelldur á síðasta ári fyrir að ráðast á eiginkonu sína.
Athugasemdir
banner